þessi mynd er ein af mínum uppáhaldsmyndum og skartar leikurunum Tom Hanks og Leonardo Dicaprio í aðalhlutverkum ásamt Christofer Walken. leikstjórinn er enginn annar en Steven Spilberg. mydnin fjallar um einn frægasta falsara sögunnar og er byggð á sannsögulegum atburðum. DiCaprio leikur falsarann Frank William Abignale Jr. og Walken leikur föður hans. Tom Hanks er þarna í hlutverki óvinsællar og geðstirðrar lögreglu sem sérhæfir sig í fölsunum. Frank er undarlega slunginn fyrir ungan aldur sinn og falsar sér leið í margar af virtustu stöðum þessa tíma og gerist flugmaður hjá PanAm þarsem hann fær að fljúga frítt, lögmaður og læknir, auk þess sem hann falsar tékka fyrir milljónir dollara.
Frank Abagnale Sr.: Two little mice fell in a bucket of cream. The first mouse quickly gave up and drowned. The second mouse, wouldn't quit. He struggled so hard that eventually he churned that cream into butter and crawled out. Gentlemen, as of this moment, I am that second mouse.
Myndin er æsispennandi og einkum vel leikin. ég tók sérstaklega eftir flottri tónlust í myndinni. Catch me if you Can nær að fanga tíðarandann nokkuð vel finnst mér og það kemur allt rosalega flott heim og saman. æðisleg mynd sem ég gef 8/10
Fullmetal Alchemist eða FMA er að mínu mati skemmtilegasta teiknaða sjónvarpsefni fyrri tíma og verður seint toppað. Fyrir þá sem hafa einhvern áhuga að líta aðeins inní veröld Anime teiknimynda ættu að byrja á að horfa á þessa þáttaröð en hún samanstendur af 51 þætti sem eru 24 mínútur hver en það þykir alls ekki langt miðað við aðrar animeseríur. myndirnar eru mjög ljósar og litríkar. Ég er ekki það fróður um anime til að geta nefnt þann stíl hver sem er getur séð að í samanburði við til dæmis Death Note eða Calaymore eða samurai shamploo sem eru allt mjög dökkar og myrkar teikningar þá er virkilega upplífgandi að horfa á litríka heim FMA. Sögurþráðurinn hefur alltaf verið sterkasta hlið japanskra teiknimynda og eru ekki til flottari flækjur neins staðar að mínu mati en í þessum fáu anime seríum sem ég hef séð. ég vil nú tala sem allra minnst um söguna í FMA ef ské kynni að einhver ykkar muni líta á þetta en það er mjög auðvelt að spoila þarsem það gerist nánast í hverjum einasta þætti að eitthvað nýtt og spennandi komi í ljós. Það reyndar veldur helsta gallanum við þessa seríu og raunar flest það anime sem ég hef séð en það er hversu slungnir höfundar eru að valda "fíkn" í þættina. En það er svo óendanlega auðvelt að festast yfir þeim að áður en maður veit af er allur dagurinn búinn og 25-30 þættir liðnir. Sagann í FMA er mjög heilsteipt og fer bara útfyrir efnið einn þátt af þessum 51 en það er svokallaður filler. Þættirnir hafa verið dubbaðir á Ensku en ég mæli engan vegin með að horfa á þá þannig og ég held að það séu allir animeáhugamenn sammála um. Fullmetal Alchemist segir frá bræðrunum Alponse og Edward sem eru ekki nema svona 9 ára þegar þeir ákveða að læra hina fornu list alchemy sem er fyrir okkur einskonar galdur en er í raun vísindi og byggir á lögmálinu um jafnvægi, að ef þú gefur ekkert þá færðu ekkert. þættirnir byrja semsé á því að bærðurnir taka þá ákvörðun að beyta hinni forboðnu hlið alchemy og reyna að endurlífga móður sína. fyrir þetta gjalda þeir með líkömum sínum og fjallar serían um leit þeirra að the philosofer stone sem hefur þann mátt að rúfa þetta lögmál um jafnvægið og geti þannig gert þeim kleift að endurheimta líkamsparta sína. "The Philosophers' Stone: those who possess it, no longer bound by the laws of Equivalent Exchange in Alchemy, may gain without sacrifice, create without equal exchange. We searched for it, and we found it." Heimurinn sem sagan gerist í er alveg magnað sköpunarverk og varla er hægt að lýsa spennunni sem býr í þessum þáttum persónurnar eru virkilega flottar og miklar tilfinningar koma fram hjá þeim svo áhorfandinn kynnist þeim mjög vel. þetta gerir það líka að verkum að spennan magnast þegar manni finnst svo mikið í húfi að persónum takist ætlunarverk sitt. Ég verð að mæla með því að sem flestir finni sinn innri nörd og horfi á að minnsta kosti 10-15 þætti af þessu og sjá hvort þeir geta hætt án þess að klára seríuna eftir það. Framleiðendur þáttanna eru Square en þeir eru þekktir tölvuleikjaframleiðendur í Japan og komu einnig að gerð myndarinnar Final Fantasy VII: Advent Children sem ég hef bloggað um nú þegar. ég ætla að gefa Fullmetal Alchemist seríunum 10/10 mögulegum í einkunn og mæli eindregið með að þi skellið ykkur á einhverja af torrentsíðunum og sækið ykkur nokkra þætti. Fma er líklega þekktasta animeserían um þessar mundir og er valin sú bestaá fleiri en einum og fleiri en tveimur áhugasíðum um anime.
Eftir að hafa horft á fjöldann allan af youtube videoum í leit að einhverju sem gat sýnt eitthvað af þessu án þess að spoila komst ég að því að það er varla til staðar nema í svona fáránlegum klippum með einhverju steiktu lagi yfir.... en allavega það er skárra en ekkert þetta allavega sýnir smá þó þetta byggi á glensinu í þáttunum frekar en því sem maður hefur aðallega gaman af. alveg skemmtilegt video samt....verst samt með the Hamster Dance svo ef þið setjið á mute þá er það miklu eðlilegra :P
Þarna er önnur æðisleg gamanmynd með Will Farrel í aðalhlutverki en hann fór aíðast allsvakalega á kostum í Blades of Glory einstaklega steiktri listdansskautamynd ásamt Napoleon Dynamite gaurnum. Talladega Knights fellur inn í eins konar seríu af myndum finnst mér sem hófst á Anchorman: The Legend of Ron Burgundy, svo kom Talladega Knights: The Ballad of Ricky Bobby og nýjasta myndin Walk Hard: The Dewey Cox Story, þessar myndir hafa bara svo líka titla og svipað crew ásamt því hversu rosalega áþekkar þær eru þar sem þær byggja allar á rosalegri dýrkun á ákveðinni sjúklega ýktri steríótýpu sem gerir í raun ekkert til að breyta útaf því sem ætlast er til af henni. Það er lítið hægt að setja út á Talladega Knights en þó finnst mér hún langsíst þessarra mynda sem ég nefndi hér að ofan. Myndin fjallar um svona hálfgerðan looser sem tekst auðvita að vinna sig upp í að verða alger kappaksturshetja. Þetta er mjög gamansöm mynd og Will Ferrel fer auðvelt með að láta fólk hlæja af klunnaleik sínum en hann er einnig handritshöfundur ásamt Adam McKay sem hefur komið að nokkrum meistaraverkum gegnum árin, meðal annars myndunum um Ron Burgundy.Með aðalhlutverk myndarinnar fara;Will Farrel, Gary Cole, John C. Reilly og Adam McKay.
[first lines] Reese Bobby: [Reese is speeding] Guess how fast were going now. Lucy Bobby: [screams] I don't care, I'm having a baby! Reese Bobby: Hundred and five miles an hour, you believe that?
þessi mynd er æðisleg snilld og hana ættu allir sem höfðu gaman af Anchorman að sjá. ég gef henni 8/10
hérna er einstaklega skemmtilegt atriði þegareinkennandi fyrir húmor myndarinnar kemur fyrir.
Það ættu flestir að þekkja þessa sit-/drama-com þætti sem hafa held ég verið sýnir á einhverri stöð hérna á klakanum í soldinn tíma. þeir fjalla um læknanema og seinna lækna sem takast á við dagleg störf á skemmtilega gamansaman hátt. þessir þættir hafa verið í miklu uppáhaldi hjá mér í langan tíma núna og það hryggir mig því að það styttist í endalokin þar sem sjöunda og síðasta serían er enn á enda. Scrubs byggist upp á skemmtilegan háttt þar sem margar sögur tvinnast saman í hverjm þætti og allt er svo útskýrt af sögumanninum og aðalpersónunni JD sem er leikinn af meistara Zack Braff en persóna hans á að vera líklega einn sá meinlausasti maður í heimi og einstaklega svona needy en samt sem áður virkilega hress og fyndin...Vegna þess hvað uppbygging þáttanna er undarleg að því leyti að þeir sýna í raun bara það sem JD sér þá er mjög mikið notast við svona single-camera setup í stað multiple-camera setup sem gengur og gerist í þáttum sem þessum. Scrubs þættirnir eru ekki eilíft glens og er yfirleitt svona moral í hverjum þætti sem JD svo rekur í enda hvers og eins þáttar svo okkur líður öllum eins og við höfum lært eitthvað og getum því orðið betri læknar í raunveruleikanum. :D Persónur Scrubs eru einstaklega skemmtilegar og mjög fjölbreyttar en helstu persónurnar eru auðvitað JD og svo besti vinur hans, skurðlæknirinn Cris Turk sem er í raun alger andstæða við JD þrátt fyrir hversu líkir þeir eru á yfirborðinu. Turk: It sounds like you're asking me out on a man date. J.D.: Turk, why are you so afraid of loving me? Turk er svo kvæntur hjúkkunni Carla sem er með áráttu fyrir að hugsa fyrir öllu. Elliot Reid er ljóskan sem þarf að vera í öllum svona þáttum og hún er svolítið skemmtilegur caracter þarsem hún er svo rosalega óörugg og stressuð en þroskast rosalega mikið gegnum þættina og breytist mikið.
Loks er hinn alvitri Dr. Cox sem á að vera þónokkuð eldri en hinar persónurnar og alveg hinn fullkomni læknir fyrir utan sinn ólýsanlega hroka og mikilmennskubrjálæði, hann er í raun bara eins og venjuleg manneskja á PCP með alveg rosalega ýkt egó. ekki má gleima húsverðinum sem kemur aldrei fram hvað heitir en hann er merkilega skemmtilegur caracter og er samt svo fáránlega leiðinlegur og gerir allt sem í hans valdi stendur til að rústa ferli og lífi JD.
Janitor: [J.D. and Turk have been stealing hospital supplies] Hey, have you been stealing pudding cups and toilet paper around here? J.D.: [stammers] No! I hate pudding and I don't use... toilet paper. Janitor: [Janitor stares] J.D.: I have one of those French things that shoots water up your butt. Janitor: Bidet? J.D.: BIDET to you sir.
Þess má til gamans geta að leikarinn sem fer með hlutverk húsvarðarins sótti fyrst um sem JD en fékk augljóslega ekki stöðuna. Framleiðendum leist samt svo vel á hann að þeir bættu inn hlutverki fyrir hann í fyrstu tveimur þáttunum þarsem hann fór með lítið hlutverk sem húsvörðurinn, þetta kom hins vegar svo vel út að hann hefur verið með hlutverk í öllum Scrubsþáttunum nema einum sem ber heitið My Lucky Day. Scrubs eru einstaklega afslappaðir og þægilegir þættir og eins og kannski einkennir þessa tegund sjónvarpsefnis þá eru þeir alveg geðveikt mindless svo þeir eru vel til þess fallnir að taka hugann af próflestri og slappa aðeins af og koma sér í gott skap. linkuráimdbfyrirscrubsþættina
Handritshöfundar Walk Hard: The Dewey Cox Story eru so miklir andskotans snillingar að það hálfa væri helmingi meira en allt of mikið. þeir Judd Apatow og Jake Kasdan hafa átt magnaða röð af æðislegum myndum en Jake Kasdan er einnig leikstjóri þessa meistaraverks. Judd Apatow kemur að Superbad (sem trónir ásamt þessari mynd á topplistanum mínum) og á því sama ári Knocked up, sem er reyndar ekki alveg janffrábær en samt að mínu matir ein af bestu myndum ársins 2007 þrátt fyrir alveg fáránlegan endi. Apatow kom einnig að Talladega Knights: the Ballad of Ricky Bobby sem er tær snilld þar á undan The 40 year old Virgin þar á undan Anchorman The Legend of Ron Burgundy sem er mín uppáhaldsmynd. Walk Hard: The Dewey Cox Story fjallar um alla ævi Dewey Cox sem er líklega ein sú allra skrautlegasta sem sögur hefðu farið af ef hann hefði verið til en eins og sagt er svo skemmtilega frá í myndinni: "Cox sleeps with 411 women, marries three times, has 22 kids and 14 step-kids and gets addicted to - and then kicks - every drug known to man."Myndin gerir grín að helstu tónlistarsögutímabilunum og þekktustu artistum hvers tíma og verður Dewey alltaf eins mikil steríótýpa og hægt er að vera fyrir hvern og einn tíma og er alltaf á kafi í týskudrugginu. [from trailer]
Sam: [after Dewey accidentally barges in a room filled with smoke and groupies] [coughs] Sam: Get outta here, Dewey! Dewey Cox: What are y'all doin' in here? Sam: We're smoking reefer and you don't want no part of this shit. Dewey Cox: You're smoking *reefers*? Sam: Yeah, 'course we are; can't you smell it? Dewey Cox: No, Sam. I can't. Girl Groupie: Come on, Dewey! Join the party! [takes a hit off a joint] Sam: No, Dewey, you don't want this. Get outta here! Dewey Cox: You know what, I don't want no hangover. I can't get no hangover. Sam: It doesn't give you a hangover! Dewey Cox: Wha-I get addicted to it or something? Sam: It's not habit-forming! Dewey Cox: Oh, okay... well, I don't know... I don't want to overdose on it. Sam: You can't OD on it! Dewey Cox: It's not gonna make me wanna have sex, is it? Sam: It makes sex even better! Dewey Cox: Sounds kind of expensive. Sam: It's the cheapest drug there is. Dewey Cox: [at a loss and out of excuses] Hmm. Sam: You don't want it! Dewey Cox: I think I kinda want it. Sam: Okay, but just this once. Come on in. með þessum orðum byrjar eiturlyfjaferill Deweys. Með Aðalhlutverk myndarinnar fer John C. Reilly og gerir það með miklum glæsibrag alveg frá því persóna hans á að vera 14 ára en þessi karlalegi leikari þarf á yngstu árunum alltaf að taka það fram hversu gamall hann er til að fólk viti það og er það einstaklega fyndið þar sem hann er 42 ára að leika 15 ára þriggja barna föður með 13 ára konu sinni. þessi mynd fær 9,5/10 og er að mínu mati ein allta fyndnasta mynd sem til er ásamt þessum stórkostlega söguþræði og magnaða handriti því díalogurinn er alger snilld og samtölin eru öll byggð upp svipuð þeim í Anchorman og Talladega Knights þar sem fáránlegum og algerlega tilgangslausum commentum er skotið inn og allt er alveg rosalega íkt. það er gaman að sjá mynd gera svona grín af Bítlunum sem að hafa verið uppi á svo miklm stalli alltaf að það er meiraðsegja bannað að remixa lögin þeirra, en ég ætla ekki að fara útí það ennþá, en það er allavega löngu kominn tími á það að draga þetta fráránlega goðsagnakennda og ofmetna band örlítið niður. myndin skartar alveg ofboðslega mikið af leikurum sem maður þekkir í litlum hlutverkum, en þarna kemur fram t.d Jack Black í hlutverki Paul's Mcartney, Paul Rudd sem John Lennon og Jane Lynch sem sjónvarpsmaður. Tónlistin sem samin er fyrir myndina er alveg stórfengleg og lögin eru alveg ofboðslega klassísk fyrir þann tíma sem þau eiga að gerast á en eru mjög skemmtileg og engu síðri en hver önnur lög frá þessum tímum og virkilega vel samin og útsett. það hefur greinilega verið haft mikið fyrir þessari stórskemmtilegu mynd og ég mæli eindregið með því að hver einasti sjái hana. ég mæli með að fara á hana í bíó bara ef hún er ennþá sýnd þ.e.a.s eða bara punga út fyrir henni.
Eftir að hafa verið í Spænsku í 3 ár og horft þar á fjöldann allan af leiðinlegum myndum verð ég að viðurkenna að þessi mynd varð til þess að áhugi mynn á Spænskri kvikmyndalist endurlífgaðist og bjargaði mér jafnvel frá fáránlegum fordómum sem hefpi ekki verið gaman. Ég hafði mjög gaman af henni og er alveg örugglega ekki sá eini því myndin fær 7,6 á imdb. Myndin gerist á Spáni árið 1939 og fjallar um 10 ára dreng sem er settur á munaðarleysingjahæli þar sem ekki er allt með felldu en þar er auðvitað reymt ásamt því að einn stjórnandinn er alveg snargeðveikur maður sem hefur þegar myrt einn og er við það að myrða annan dreng á þessu heimili. Myndin er þónokkuð drungaleg og rýkir soldið mikill óhugnaður yfir henni en þó aldrei neinn viðbjóður sem er alveg ágætis tilbreyting. þessari mynd gef ég 7/10 og er mjög sáttur með að hafa séð hana og mæli með henni. mynd þessi vann alveg þónokkur verðlaun og má þar nefna ALMA, Saturn og MTV movie awards.
ég ætla að gerast svo djarfur að breyta útaf þessari kvikmyndaumfjöllun sem ég hef verið með undanfarið og tala um eitt umdeildasta tónlistarmyndband sögunnar. Veit ekki afhverju en lagið bara poppaði uppí hugann. það er alveg bókað mál að allir sem lesa þessa færslu þekkja lagið en það er eins og mig minni að videoið hafi verið bannað á fles töllum tónlistarmyndbandastöðvum hér á íslandi nema á svona "sérstökum" tíma sem var alltaf klukkan svona 3 á nóttunni. reyndar hefur þetta nú eflaust mildast en ég hef ekki horft á tónlistarmyndbönd frá því að þetta var svona akkúrat mainstream svo ég veit ekki... allavega þá grípur þetta frumlega og stórkostlega myndband athygli manns um leið þegar það byrjar á fyrstupersónu sjónarhorni af manni að raka sig, skella sér á dolluna og loks klæða sig. því næst sturta í sig áfengi og fylla nasirnar af kókaíni. því næst er förinni heitið akandi niðrí bæ. þetta er ekki eitthvað sem maður sér of oft í tónlistarmyndböndum og eru hljómsveitin leikstjóri myndbandsins Jonas Akerlund miklir frumkvöðlar þegar kemur að þessum bissniss... ekki það að ég tali af no kkurri vitneskju um tónlistarmyndbandabransann en þetta er samt rosalega ólíkt öllu öðru sem maður hefur séð og þetta stendur á wikipedia svo það getur ekki verið annað en satt :$ . Ferð dópaða og drukkna mannsins heldur áfram á skemmtistað þar sem allr er orðið ansi svona fuzzy og myndavélin tekin að vagga svolítið og henni er beitt á alveg einstaklega sannfærandi vegu og þetta er greinilega soldið mikið pælt. kvöldinu er svo fylgt eftir í blackoutscetchum persónunnar og það er rosalega flott hvernig effectarnir lýsa blackoutunum. sögu"hetjan" fer um staðinn og brýtur og bramlar og áreytir og lemur og ælir og er bara með allan þann mesta ólifnað sem maður verður var við... þetta olli miklum deilum í samfélaginu og meðal annars urðu feministar alveg brjálaðir. eins og svo margt sem er svona umdeilt varð þetta gríðarlega vinsælt og man maður ekki síður eftir myndbandinu en laginu sjálfu sem þó er einn af þeim titlum sem heldur nafni hljómsveitarinnar Prodigy á lofti. Videoið vann til marga verðlauna og fékk einnig heiðurstitilinn Most Controversial Video in MTV's history. hvort sem maður hefur áhuga á tónlistinni eða ekki þá held ég að þetta video kveiki áhuga og svolitlar pælingar því það er alveg virkilega flott og endar líka á það furðulegan hátt ( þ.e.a.s sú útgáfa myndbandsins sem var bönnuð hvað lengst) að maður verður soldið ruglaður. Þetta myndband er, þrátt fyrir að standa óneitanlega uppúr, ekki eina prodigy myndbandið sem hefur vakið svoltila umfjöllun og eru þeir þekktir fyrir einstaklega frumlegar hugmyndir og skemmtilega útúrsýrðar pælingar í videounum sínum enda eru þeir einstaklega útúrsýrðir gaurar. þarna má nefna myndbandið við lagið One Love sem er tölvugert og mjög svo furðulegt.